812291
41
Verklein
Vergroot
Pagina terug
1/43
Pagina verder
OUTDOORCHEF.COM OUTDOORCHEF.COM
80 81
ÁSTRALSKA GRILLKERFIÐ FRÁ OUTDOORCHEF
Ástralía er þekkt fyrir mikla grillmenningu. A-LÍNAN frá OUTDOORCHEF er enginn eftirbátur þegar kemur að því að grilla. Hún býður upp á
mikil gæði og traustar vörur. Vinnusvæðið er stórt og stendur á stöðugum hjólum sem auðvelt er að stýra. Harðgerir brennarar úr steypujárni
halda hitanum vel og dreifa honum jafnt yfir grillflötinn. Innbyggður hitamælir sér um að mæla hitann jafnt og þétt og sérhönnuð neistaþök
vernda grillmatinn fyrir bruna vegna fitutauma.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR ÁSTRALSKT GASGRILL
Leikur einn að grilla:
1. Hafið grillið lokað og forhitið það í u.þ.b. 10 mínútur á stillingunni .
2. Setjið matinn á grillgrindina eða -plötuna og stillið hitann eftir þörfum .
3. RÁÐLEGGING: Notið aðeins einn brennara þegar um lítinn grillmat er að ræða. Þegar grillað er með lokuðu loki styttist grilltíminn og dregið
er úr gasnotkun.
4. Stillið gasstillihnappinn alltaf á eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.
GRILLAÐ MEÐ INNRAUÐUM BRENNARA
1. Forhitið grillið í u.þ.b. 5 mínútur á stillingu með OPNU LOKI.
2. Setjið matinn á grillgrindina. Innrauði brennarinn er hentugur fyrir hrað- eða léttsteikingu.
3. VARÚÐ:
Ekki má nota innrauða brennarann eða setja grillplötuna yfir hann ef lokið er á.
Það gæti valdið upplitun á grilllokinu og aflögun á
grillplötunni.
4. Stillið gasstillihnappinn alltaf á eftir notkun. Skrúfið síðan fyrir gasið á gaskútnum. Skrúfa verður fyrir gaskútinn jafnvel þótt hann sé tómur.
OUTDOORCHEF-grillið er enn betra með réttum aukabúnaði. Fáið útrás fyrir tilraunastarfsemi og sköpunargleði.
Finna má alla fylgihluti fyrir grillið á OUTDOORCHEF.COM
ÞEGAR BÚIÐ ER AÐ GRILLA
1. Stillið gasstillihnappinn fyrir hvern brennara á .
2. Skrúfið fyrir gasið á gaskútnum.
3. Leyfið grillinu að kólna alveg og þrífið það svo.
4. Hyljið grillið með yfirbreiðslu.
ÞRIF
Aðeins þarf að hreinsa grillið lítillega eftir hverja notkun þar sem mesta fitan gufar upp eða endar í safnbakkanum. Notið grillbursta með
messinghárum til að hreinsa grillgrindina og -plötuna (ekki stálbursta).
Þegar þrífa á betur skal nota BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF. Einnig er hægt að nota nælonsvamp og sápuvatn til að losna við
lausar matarleifar. Takið grillgrindina og -plötuna af og þrífið steypujárnsbrennarana. Ekki þarf að þrífa innrauða brennarann þar sem hann
brennir upp fituna á meðan grillað er. Að lokum er hægt að taka safnbakkann út, tæma hann og hreinsa með BARBECUE-CLEANER frá
OUTDOORCHEF.
MIKILVÆGT:
Ef hreinsiefni eru notuð við þrifin verður að láta grillið þorna vel á eftir.
Til að flýta fyrir þurrkun má kveikja á
grillinu og láta það brenna í nokkrar mínútur með opnu loki á stillingunni .
NOTKUN BARBECUE-CLEANER FRÁ OUTDOORCHEF
MIKILVÆGT: Ekki má vera kveikt á grillinu meðan það er þrifið með BARBECUE-CLEANER frá OUTDOORCHEF. Notið helst hanska og
hlífðargleraugu ef mögulegt er. Úðið vel á grillið eða aukabúnaðinn meðan það er enn lítillega heitt og látið standa í 15–30 mínútur. Úðið
aftur á óhreina fleti, skolið svo vandlega af með vatni og látið þorna.
ATHUGIÐ: Ekki má nota Barbecue-Cleaner frá OUTDOORCHEF á pólýhúðaða fleti.
VIÐHALD
Reglubundið viðhald grillsins tryggir rétta virkni. Athugið alla hluta sem leiða gas að minnsta kosti tvisvar á ári og í hvert sinn eftir langan tíma í
geymslu. Kóngulær og önnur skordýr geta valdið stíflum sem verður að lagfæra fyrir notkun.
Ef grillið er oft dregið yfir ójöfnur skal kanna af og til hvort allar skrúfur eru fastar.
Ef grillið er ekki notað í lengri tíma skal framkvæma LEKAPRÓFUN áður en það er tekið í notkun á ný. Ef spurningar vakna skal snúa sér til
umboðsaðila gassins eða sölustaðar.
Til að forðast skemmdir vegna tæringar skal smyrja alla málmhluta með olíu áður en grillið er sett í geymslu í lengri tíma.
Eftir langan geymslutíma og a.m.k. einu sinni á grilltímabilinu skal athuga gasslönguna með tilliti til sprungna, brota og annarra skemmda.
Skiptið strax um skemmda gasslöngu eins og lýst er í kaflanum ÖRYGGISUPPLÝSINGAR. Til að lengja líftíma grillsins eins og hægt er skal
hlífa því fyrir umhverfisáhrifum með hentugri yfirbreiðslu frá OUTDOORCHEF sem sett er á eftir að grillið hefur kólnað að fullu. Til að koma í
veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir rigningu. Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
GERT VIÐ BILUN
Það kviknar ekki á brennaranum:
Athugið hvort opið er fyrir gasstreymið á kútnum.
Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennarann.
Enginn neisti:
Gangið úr skugga um að rafhlaðan hafi verið sett rétt í (á grillum með rafkveikingu).
Fjarlægðin milli brennara og rafskauts má ekki vera meiri en 5–8 mm.
Athugið hvort snúrur í rafkveikingu og rafskauti eru vel festar.
Setjið nýja rafhlöðu (gerð AA, LR02, 1,5 volt) í rafkveikinguna (á grillum með rafkveikingu).
Ef ekki tekst að koma grillinu í gang með framangreindum úrræðum skal hafa samband við sölustað.
NOTENDAÁBYRGÐ
1. Ábyrgð og tenging við önnur réttindi kaupanda
Með kaupum á þessari OUTDOORCHEF vöru hjá viðurkenndum söluaðila færð þú sem kaupandi (notandi) hennar afhenta ábyrgð
framleiðandans Outdoorchef AG („OC“).
Ábyrgð framleiðanda gefur þér færi á að leggja fram kröfur á hendur ábyrgðarveitanda í samræmi við ákvæði þessa samnings. Ábyrgðarkröfur
gilda, auk annarra samningsbundinna eða lagalegra réttinda þinna. Þessi ábyrgð útilokar ekki eða takmarkar önnur réttindi. Þar af leiðandi getur
þú einnig lagt fram aðrar samningsbundnar eða lagalegar kröfur á hendur viðkomandi ábyrgðaraðilum hverju sinni. Þannig hefur þessi ábyrgð til
dæmis ekki áhrif á kröfur sem lagðar eru fram samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð.
Sem kaupandi hefurðu einnig sérstakan möguleika á að leggja fram samningsbundnar ábyrgðarkröfur gagnvart seljandanum. Þá er til dæmis
hægt að rifta kaupsamningnum aðeins gagnvart seljandanum en ekki gagnvart OC innan ramma þessarar ábyrgðar.
2. Samningsaðilar og ábyrgðarskilmálar
Ábyrgðarveitandi er OC. Rétt á ábyrgð eiga allir kaupendur sem kaupa nýja vöru til einkanota í viðurkenndri verslun. Leggja skal fram sölukvittun
til sönnunar á kaupum. Kaup til einkanota eru þegar varan er keypt af einstaklingi yfirleitt í þeim tilgangi að nota hana án þess að það sé í
atvinnuskyni eða í tengslum við sjálfstæðan atvinnurekstur.
Ef nýta á ábyrgðina verður að leggja fram ábyrgðarkröfuna fyrir ábyrgðarveitanda innan tveggja mánaða frá því ágalli kemur í ljós. Að öðrum kosti
er ekki hægt að leggja fram ábyrgðarkröfur. Ef um augljósa galla er að ræða hefst fresturinn við móttöku vörunnar. OC mælir með því að skoða
vöruna vegna galla strax við móttöku.
BEINN HITI ÓBEINN HITI
Fyrir beina grillun og matreiðslu: Setjið matinn yfir
brennarann sem kveikt er á.
Fyrir óbeina grillun, matreiðslu og bakstur: Setjið matinn
fyrir miðju, setjið lokið niður og kveikið aðeins á báðum
ytri brennurunum.
41

Hulp nodig? Stel uw vraag in het forum

Spelregels

Misbruik melden

Gebruikershandleiding.com neemt misbruik van zijn services uitermate serieus. U kunt hieronder aangeven waarom deze vraag ongepast is. Wij controleren de vraag en zonodig wordt deze verwijderd.

Product:

Bijvoorbeeld antisemitische inhoud, racistische inhoud, of materiaal dat gewelddadige fysieke handelingen tot gevolg kan hebben.

Bijvoorbeeld een creditcardnummer, een persoonlijk identificatienummer, of een geheim adres. E-mailadressen en volledige namen worden niet als privégegevens beschouwd.

Spelregels forum

Om tot zinvolle vragen te komen hanteren wij de volgende spelregels:

Belangrijk! Als er een antwoord wordt gegeven op uw vraag, dan is het voor de gever van het antwoord nuttig om te weten als u er wel (of niet) mee geholpen bent! Wij vragen u dus ook te reageren op een antwoord.

Belangrijk! Antwoorden worden ook per e-mail naar abonnees gestuurd. Laat uw emailadres achter op deze site, zodat u op de hoogte blijft. U krijgt dan ook andere vragen en antwoorden te zien.

Abonneren

Abonneer u voor het ontvangen van emails voor uw Outdoorchef Australia bij:


U ontvangt een email met instructies om u voor één of beide opties in te schrijven.


Ontvang uw handleiding per email

Vul uw emailadres in en ontvang de handleiding van Outdoorchef Australia in de taal/talen: Nederlands, Duits, Engels, Frans, Italiaans, Deens, Zweeds, Noors, Fins als bijlage per email.

De handleiding is 7.99 mb groot.

 

U ontvangt de handleiding per email binnen enkele minuten. Als u geen email heeft ontvangen, dan heeft u waarschijnlijk een verkeerd emailadres ingevuld of is uw mailbox te vol. Daarnaast kan het zijn dat uw internetprovider een maximum heeft aan de grootte per email. Omdat hier een handleiding wordt meegestuurd, kan het voorkomen dat de email groter is dan toegestaan bij uw provider.

Uw handleiding is per email verstuurd. Controleer uw email

Als u niet binnen een kwartier uw email met handleiding ontvangen heeft, kan het zijn dat u een verkeerd emailadres heeft ingevuld of dat uw emailprovider een maximum grootte per email heeft ingesteld die kleiner is dan de grootte van de handleiding.

Er is een email naar u verstuurd om uw inschrijving definitief te maken.

Controleer uw email en volg de aanwijzingen op om uw inschrijving definitief te maken

U heeft geen emailadres opgegeven

Als u de handleiding per email wilt ontvangen, vul dan een geldig emailadres in.

Uw vraag is op deze pagina toegevoegd

Wilt u een email ontvangen bij een antwoord en/of nieuwe vragen? Vul dan hier uw emailadres in.



Info